Lokið augunum og farið aftur í tímann. Ímyndið ykkur að þið séuð 15 eða 16 ára.. í grunnskóla ennþá.. það er diskótek um kvöldið og ekki nóg með það heldur ætlar aðal sveitaballa hljómsveitin að spila seinna um kvöldið, Skítamórall!!! Það er gríðarleg spenna, allir eru mættir úr bekknum enda var ekki talað um annað allan daginn í íslenskutíma hjá Lilju kennara og í Stærðfræðitíma hjá Hilmari.. já það er gaman að hugsa svona aftur í tímann en þetta er ekkert svo fjarlægur veruleiki því þetta er einmitt það sem við erum að fara að gera á laugardaginn, nema núna erum við eldri og getum meira að segja fengið okkur sjúss á ballinu..
Bekkjarmótið verður núna á laugardaginn 30. maí 2009 á skemmtistaðnum B57 í Borgarnesi.
Við ætlum að mæta milli 18:00 og 19:00 á staðinn og grilla saman, hver og einn kemur bara með sitt það þarf ekki að vera mikið, pulsur eða hamborgarar.. það verður grill á staðnum.
Það verða sýndar gamlar ljósmyndir frá grunnskólaárunum á risaskjá og svo verða sýnd myndbönd frá skemmtunum og öðru slíku, svo verður tónlist svo hægt verður að dansa og hafa gaman, diskó diskó friskó.... Það verður tilboð á barnum fyrir okkur þangað til staðurinn opnar fyrir almenning um 23:00
Svo seinna um kvöldið þegar staðurinn opnar fyrir almenning þá verður ball með Skítamóral fram eftir nóttu..
Það kostar 500 kr. Borgað við komu.
Ballmiði kostar 2000 kr. Og auðvitað viljum við sjá sem flesta á ballinu.
Makar eru velkomnir að koma með og djamma með ykkur, það verður nú gaman fyrir þau að sjá myndir af ykkur frá því í grunnskóla
Þetta verður atburður sem við munum seint gleyma... þess vegna er skyldumæting!!
Leynigestir verða Gurrí gangavörður og Ragnheiður myndmenntakennari... nei þær verða bara með okkur í anda